Vladimir Pútín Rússlandsforseti sagði í símtali við Sauli Niinistö Finnlandsforseta miðvikudaginn 15. júlí að Finnar hefðu hlaupið á sig „lögfræðilega“ þegar þeir neituðu rússneskum þingmönnum að sitja þing Öryggissamvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) í Helskinki 5. til 9. júlí, hins vegar hefðu Finnar gert þetta undir þrýstingi frá öðrum ESB-ríkjum. Rússlandsforseti sagði …
Lesa meiraJapansher fær nýtt og aukið hlutverk með umdeildum lögum
Neðri deild japanska þingsins samþykkti fimmtudaginn 16. júlí lagafrumvarp sem heimilar her Japans að taka þátt í hernaðaraðgerðum erlendis en bann við því hefur verið í gildi frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. Þingmenn samþykktu frumvarpið þrátt fyrir mikla andstöðu utan þings. Mótmæli almennings á götum úti í Japan eru hin mestu …
Lesa meiraRússnesk sprengjuvél ferst í Asíu – tíðir óboðnir gestir við Ísland
Rússneska TASS-fréttastofan skýrði frá því þriðjudaginn 14. júlí að sama dag hefði langdræg sprengjuvél rússneska flughersins, Tupolev Tu-95MS, farist í æfingaflugi í Khabarovsk-héraði í austasta hluta Rússlands. Var vitnað í tilkynningu varnarmálaráðuneytisins en jafnframt ónefndan heimildarmann um að drepist hefði á öllum fjórum hreyflum vélarinnar. Áhöfnin bjargaðist. Æfingaflugið var farið …
Lesa meiraForsetar Eystrasaltslandanna árétta nauðsyn varðstöðu gagnvart Rússum
Dalia Grybauskaite, forseti Litháens, og Raimonds Vejonis, forseti Lettlands, hittust í Vilnius, höfuðborg Litháens, mánudaginn 13. júlí og ræddu áform um sameiginleg kaup á loftvarnakerfum til að styrkja öryggi landa sinna vegna ögrana af hálfu Rússa. Veronis var settur inn í embætti forseta Lettlands miðvikudaginn 8. júlí. Daginn eftir fór …
Lesa meiraRússar saka Bandaríkjaher um að kjarnorkuvæðingu í Evrópu
Rússar hafa lýst áhyggjum vegna nýlegra tilrauna Bandaríkjamannan með kjarnorkusprengjur. Telja Rússar að þær bendi til þess að þeir hafi í huga að setja B61-12 kjarnorkusprengjur um borð í skammdrægar sprengjuvélar í herstöðvum á vegum NATO í Evrópu. Í frétt á sputniknews.com mánudaginn 13. júlí er minnt á að hinn …
Lesa meiraCameron leggur áherslu á dróna og sérsveitir
Sérsveitir breska hersins verða efldar og breska ríkið mun kaupa fleiri flugvélar og dróna til njósna. Þetta er meðal þess sem David Cameron, forsætisráðherra Breta, kynnir mánudaginn 13. júlí þegar hann skýrir hvernig ríkisstjórnin hyggst nýta auknar fjárveitingar til varnarmála. George Osborne fjármálaráðherra skýrði frá því í síðustu viku að …
Lesa meiraYfirmaður landhers Bandaríkjanna boðar fjölgun hermanna í Evrópu
Raymond Odierno, hershöfðingi, herráðsforingi landhers Bandaríkjanna, sagði föstudaginn 10. júlí við fréttaritara The Wall Street Journal (WSJ) í París, að hann vildi hverfa frá áformum Bandaríkjastjórnar um að fækka bandarískum hermönnum í Evrópu. Hann stefndi að því að fjölga bandarískum hermönnum í álfunni og auðvelda þannig að nota mætti …
Lesa meiraB-52 sprengjuvélar í 44 stunda Ástralíuflugi
Bandaríski flugherinn hefur skýrt frá því að tveimur B-52 vélum hafi verið flogið án millilendingar fram og til baka til Ástralíu til æfinga þar. Sprengjuvélarnar tóku á loft frá Barksdale Air Force Base í Louisiana-ríki, flugu til Ástralíu, féllu inn í æfingu ástralska hersins, slepptu venjulegum sprengjum og sneru síðan …
Lesa meiraRússar efla kafbátaflota sinn
Rússar ætla að efla kafbátaflota sinn með tveimur nýjum kjarnorkuknúnum „fimmtu-kynslóðar bátum“ sem nú ganga undir vinnuheitunum „flugmóðurskipa-eyðir“ og „neðansjávar-vörður“. „Flugmóðurskipa-eyðirinn“ verður búinn stýriflaugum og honum á að beita gegn skotmörkum á landi og herskipum, einkum flugmóðurskipum, sagði Anatolij Shlemov, yfirmaður varnarmáladeildar Sameinuðu rússnesku skipasmiðjanna við Lenta.ru í síðustu viku. …
Lesa meiraHelsinki: ÖSE-þing spillir samskiptum Rússa og Finna
Nikolai Kovalev er eini rússneski þingmaðurinn sem situr 40 ára afmælisfund þings Öryggissamvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) í Helskini sem hófst mánudaginn 6. júlí. Hann kom klukkustund of seint til fundarins og gagnrýndi afgreiðslu finnskra stjórnvalda sem leiddi til að rússneskum þingmönnum, þar á meðal forseta neðri deildar þingsins, Dúmunnar, var …
Lesa meira