Home / Fréttir / Visir.is: Tvíhliða samskipti Færeyja og Bandaríkjanna efld – Danir ekki við borðið

Visir.is: Tvíhliða samskipti Færeyja og Bandaríkjanna efld – Danir ekki við borðið

d96bc2d8f7a57e4f26f734efeb02a759e21612ceb10c72256e8e2ea254b3c34d_713x0
Fulltrúar Bandaríkjanna og Færeyja innsigla samstarfsyfirlýsinguna í Norðurlandahúsinu í Þórshöfn fimmtudaginn 12. nóvember 2020.. Michael J. Murphy, fremst til vinstri, og Jenis av Rana, til hægri, olnboga vináttubönd þjóðanna að lokinni undirritun. Sendiherrann Carla Sands klappar fyrir aftan til vinstri. (Mynd Føroya landsstýri.)

Á visir.is fylgjast fréttamenn vel með því sem gerist á sviði utanríkis- og öryggismála á Norður-Atlantshafi. Laugardaginn 14. nóvember birtist þar til dæmi neðangerind frétt eftir Kristján Már Unnarsson um þáttaskil í samskiptum stjórnvalda í Færeyjum annars vegar og Bandaríkjunum hins vegar.

Kristján Már skrifar:

Færeyjar og Bandaríkin hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu, þá fyrstu þeirra á milli í sögunni, sem mótar ramma að auknu tvíhliða samstarfi landanna. Skjalið undirrituðu Jenis av Rana, utanríkis- og menningarmálaráðherra Færeyja, og Michael J. Murphy, staðgengill aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, við athöfn í Norðurlandahúsinu í Þórshöfn í Færeyjum á fimmtudag.

Meðal viðstaddra var Carla Sands, sendiherra Bandaríkjanna í Danmörku. Hún hafði áður komið á fundi Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, með forystumönnum Færeyja og Grænlands í Kaupmannahöfn í júli síðastliðið sumar. Sá fundur lagði grunninn að undirrituninni núna, sem og nýlegum samningum Bandaríkjanna og Grænlands. Athygli vekur að þessar undirritanir eru án beinnar aðildar stjórnvalda í Kaupmannahöfn, en formlega fer ríkisstjórn Danmerkur með utanríkismál Færeyja og Grænlands.

Íslendingar hafa einnig orðið áþreifanlega varir við aukinn áhuga Bandaríkjamanna á smáþjóðum Norður-Atlantshafsins, sem raungerist brátt með milljarða hernaðarframkvæmdum á Keflavíkurflugvelli. Þá viðraði bandarískur aðmíráll á fundi með íslenskum fréttamönnum í Reykjavík fyrir hálfum mánuði hugmyndir um varanlega viðveru Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli og nýja flotastöð á Austfjörðum.

„Færeyjar hafa lengi leitast við að þróa sterkari og markvissari samskipti við Bandaríkin. Þessi samstarfsyfirlýsing er því mikið skref fram á við. Það gefur okkur grundvöll til að vinna sameiginlega með Bandaríkjunum að virkara samstarfi á fjölmörgum sviðum, þar á meðal í viðskiptum, rannsóknum og menntun,“ sagði færeyski ráðherrann Jenis av Rana, í tilefni af undirritun samstarfsyfirlýsingarinnar.

„Færeyjar eru hernaðarlega staðsettar þar sem Norður-Atlantshaf mætir norðurslóðum, á svæði þar sem alþjóðlegur áhugi heldur áfram að vaxa. Við leggjum mikla áherslu á að tryggja náin og öflug samskipti við alla nágranna okkar í Norður-Atlantshafi og norðurslóðum.

Þetta þýðir einnig að sterkt samstarf við Bandaríkin skiptir sköpum fyrir Færeyjar. Við deilum sameiginlegum lýðræðislegum gildum með Bandaríkjunum, byggð á réttarríki, málfrelsi og mannréttindum, og Bandaríkin eru lykilvörn öryggis á okkar svæði,“ sagði Jenis av Rana.

Bandaríska sendinefndin notaði tækifærið í Færeyjaheimsókninni til að kynna sér færeyskt þjóðlíf. Nýtt hafrannsóknaskip Færeyinga var skoðað og fyrirtækið Bakkafrost heimsótt, en það er langstærsta fyrirtæki eyjanna og talið það áttunda stærsta á sviði fiskeldis í heiminum.

Bandaríkjamenn hafa ekki farið leynt með markmið sitt að styrkja áhrifamátt sinn á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum með því að treysta vinasamstarf við Færeyinga og Grænlendinga.

Skoða einnig

Sænskir jafnaðarmenn viðurkenna mistök í útlendingamálum

Sænskir jafnaðarmenn hafa látið vinna skýrslu um útlendingamál innan flokks síns þar sem komist er …