Home / Fréttir / Varðbergsráðstefna á föstudaginn: Aukið vægi Atlantshafs innan NATO

Varðbergsráðstefna á föstudaginn: Aukið vægi Atlantshafs innan NATO

picture1

Varðberg og Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands standa fyrir ráðstefnu um öryggismál á Norður-Atlantshafi í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins, föstudaginn 23. júní frá kl. 14.00 til 17.00.

Aukið vægi Atlantshafs innan NATO

Undanfarin misseri hefur áhugi NATO á Norður-Atlantshafssvæðinu aukist. Þar hefur heræfingum undir merkjum NATO fjölgað og á næstunni verður haldin flotaæfing í nágrenni Íslands. Hefur mikilvægi GIUK hliðsins og hafsvæðisins í kringum Ísland vaxið? Taka hernaðarumsvif á Norður-Atlantshafi breytingum á komandi árum?

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra setur ráðstefnuna.

Frummælendur:

Clive Johnstone, flotaforingi, yfirmaður flotastjórnar NATO

John Newton, flotaforingi, yfirmaður Atlantshafsflota Kanada

Sóley Kaldal, áhættuverkfræðingur á aðgerðasviði Landhelgisgæslu Íslands

Jacob Børresen, fyrrverandi foringi í norska flotanum

Jim Townsend, fyrrverandi aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna

Auk frummælenda munu Arnór Sigurjónsson, skrifstofustjóri öryggis- og varnarmála í utanríkisráðuneytinu og Jóna Sólveig Elínardóttir, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, taka þátt í pallborðsumræðum.

Björn Bjarnason, formaður Varðbergs, segir að þetta sé fjórða ráðstefnan á tæpu ári sem Varðberg og AlÞjóðmáladstofnun HÍ efna til um þróun mála á Norður-Atlantshafi og breytingar í öryggismálum á svæðinu.

Hann segir að á ráðstefnunni nú gefist tækifæri til að kynnast annars vegar viðhorfum flotaforingja frá Bretlandi og Kanada og hins vegar reynslumikilla manna frá Noregi og Bandaríkjunum sem hafa áratuga sýn yfir þróun og stöðu mála á N-Atlantshafi. Þá verði hlutverki Landhelgisgæslu Íslands lýst og stöðu Íslands.

Ráðstefnan er öllum opin.

 

Skoða einnig

Ekki lengur í fyrsta sæti eftir 99 ár – hægri sveifla í Noregi

Í fyrsta sinn frá árinu 1924 er gengið til kosninga í Noregi án þess að …