Home / Fréttir / Samkomulag við Breta í varnar- og öryggismálum

Samkomulag við Breta í varnar- og öryggismálum

Jeremy Hunt, utanríkisráðherra Bretlands, og Guðlaugur Þór Þórðarson í London 26. mars 2019.
Jeremy Hunt, utanríkisráðherra Bretlands, og Guðlaugur Þór Þórðarson í London 26. mars 2019.

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, og Jeremy Hunt, utanríkisráðherra Bretlands, rituðu þriðjudaginn 26. mars undir samkomulag milli Íslands og Bretlands um að efla tvíhliða samstarf ríkjanna í varnar- og öryggismálum. Í tilkynningu utanríkisráðuneytisins segir:

„Um er að ræða uppfærslu af samkomulagi frá árinu 2008 sem nær nú til fleiri samstarfsþátta en áður í anda þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland. Samkomulagið tekur þannig bæði til þátta er varða varnar- og öryggismál sem og löggæslumála. Þar má t.a.m. nefna eftirlit í lofti og á sjó, hryðjuverkavarnir, skipulagða glæpastarfsemi, nútíma þrælahald, netöryggi og leit og björgun.

„Umhverfi öryggismála hefur tekið stakkaskiptum á umliðnum árum og því ánægjulegt að ljúka gerð samkomulags sem tekur mið af því. Ísland og Bretland eru náin samstarfsríki, meðal annars innan Atlantshafsbandalagsins og Sameinuðu þjóðanna, og deila hagsmunum víða, þ.m.t. á norðanverðu Atlantshafi. Við erum staðráðin í að takast á við nýjar áskoranir í sameiningu og stuðla að auknu öryggi og stöðugleika í okkar heimshluta. Þá er afar gott, á þessum tímapunkti, að árétta enn frekar þau jákvæðu tvíhliða samskipti sem við höfum átt við Bretland“, sagði Guðlaugur Þór.“

 

 

Skoða einnig

Ekki lengur í fyrsta sæti eftir 99 ár – hægri sveifla í Noregi

Í fyrsta sinn frá árinu 1924 er gengið til kosninga í Noregi án þess að …