Home / Fréttir / Norrænn stuðningur við NATO-aðild Finna og Svía

Norrænn stuðningur við NATO-aðild Finna og Svía

Forsætisráðherrar Íslands, Danmerkur og Noregs gáfu 16. maí 2022 sameiginlega yfirlýsingu þar sem þeir ítreka stuðning við ákvörðun Finnlands og Svíþjóðar að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu, sem tilkynnt var um í gær og í dag.

Í yfirlýsingunni kemur fram að norrænu ríkin innan bandalagsins muni leggja sig fram um að tryggja að umsóknarferlið gangi hratt fyrir sig enda standist Finnland og Svíþjóð nú þegar þau viðmið sem krafa er gerð um vegna aðildar að bandalaginu.

Forsætisráðherrar Íslands, Danmerkur og Noregs taka jafnframt fram að ríkin muni aðstoða Finnland og Svíþjóð með öllum ráðum verði öryggi þeirra ógnað áður en aðild að Atlantshafsbandalaginu gengur í gildi.

Hér birtist yfirlýsing frá Danmörku, Íslandi og Noregi um ákvörðun Finnlands og Svíþjóðar að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu:

„Við styðjum eindregið ákvörðun Finnlands og Svíþjóðar að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu.

Ákvörðun Finnlands og Svíþjóðar um að sækja um aðild að bandalaginu byggist á fullveldisrétti ríkjanna til að ákveða fyrirkomulag eigin öryggismála. Finnland og Svíþjóð eiga rétt á því að fylgja aðildarferli sínu eftir án nokkurra tilrauna til utanaðkomandi afskipta.

Finnland og Svíþjóð deila grundvallargildum Atlantshafsbandalagsins og munu efla sameiginlegar varnir og öryggi á Evró-Atlantshafssvæðinu.

Við munum eftir fremsta megni tryggja að aðildarferlið gangi hratt fyrir sig þar sem Finnland og Svíþjóð standast nú þegar viðmið sem gerð er krafa um vegna aðildar að Atlantshafsbandalaginu. Liðsafli ríkjanna stenst staðla bandalagsins og unnt er að tryggja samhæfni með liðsafla bandalagsríkja. Við höfum þjálfað og æft saman í mörg ár. Við metum mikils veigamikið framlag Finnlands og Svíþjóðar til verkefna og aðgerða Atlantshafsbandalagsins.

Öryggi Finnlands og Svíþjóðar varðar okkur öll. Verði gerð aðför að öryggi Finnlands eða Svíþjóðar innan landsvæða þeirra, áður en til fullrar aðildar að bandalaginu kemur, munum við aðstoða þau með öllum tiltækum ráðum.

Við munum tafarlaust hefja undirbúning að framkvæmd þessara öryggisskuldbindinga. Við munum einnig þróa enn frekar varnarsamvinnu okkar við Finnland og Svíþjóð.“

Skoða einnig

Drónaárás gerð á Moskvu

Ráðist var með drónum á Moskvu, höfuðborg Rússlands, að morgni þriðjudags 30. maí. Svo virðist …