Home / Fréttir / Kristján Már á visir.is: Kaldastríðsögranir á fullu í næsta nágrenni Íslands

Kristján Már á visir.is: Kaldastríðsögranir á fullu í næsta nágrenni Íslands

Kristján Már Unnarsson fréttamaður lýsir á vefsíðunni visir.is 21. mars 2020 umsvifum hervéla í nágrenni Íslands undanfarnar vikur. Kristján Már segir:

Rússneska varnarmálaráðuneytið hefur birt myndband frá langflugi tveggja TU-160 sprengjuflugvéla, ásamt fylgivélum, framhjá Íslandi, Noregi og Bretlandi í síðustu viku. Norskar F-16 orustuþotur flugu til móts við þær frá Noregi og breskar Eurofighter Typhoon orustuþotur frá Bretlandi.

TU-160, eða hvíti svanurinn, eins og Rússar nefna þær, eru öflugustu kjarnorkuárásarþotur rússneska flughersins. Þær eru jafnframt hraðfleygustu sprengjuþotur heims, og þær stærstu sem ná hljóðhraða. Þær geta flogið á tvöföldum hljóðhraða, eða 2.200 kílómetra hraða á klukkustund, og borið allt að 40 tonna sprengjufarm, þar á meðal stýriflugar búnar kjarnaoddum.

c271958682c023bbbdfab7efcd6171e58560fdd63876468e003959f133d31c13_713x0

Flugsveit NATO-herja í oddaflugi yfir Íslandi í byrjun vikunnar. Bandarísk B-2 sprengjuþota fremst en norskar F-35 og bandarískar F-15 orustuþotur fylgja. Mynd/US Air Force.

Fjórir dagar liðu frá þessari ögrun Rússa þar til NATO og Bandaríkjaher birtust með sínar skæðustu sprengjuþotur, B-2, yfir Íslandi. Tvær slíkar flugu í oddaflugi í fylgd hersingar norskra og bandarískra orustuþotna með þeim skilaboðum bandaríska hershöfðingjans Jeff Harrigian „..til allra andstæðinga okkar, að hver sem áskorunin er, þá erum við tilbúin“.

Flug TU-160 sprengjuþotnanna varði í alls fimmtán klukkustundir og fengu þær eldsneytisáfyllingu á leiðinni út af ströndum Norður-Noregs frá Ilyushin Il-78-eldsneytisvél, að því er fram kemur í frétt rússnesku TASS-fréttastofunnar. Þær lögðu upp frá sunnanverðu Rússlandi, flugu síðan norður yfir Kólaskaga, yfir Barentshaf, síðan suður yfir Noregshaf, í gegnum GIUK-hliðið milli Íslands og Bretlands, suður fyrir Írland og alla leið inn á Biskajaflóa áður en þær sneru aftur heim á leið.

c78630b886343978e2ac6964eb2bd6bef1fa739b5efec1406227efcbf844127e_713x0

Flugleið rússnesku TU-160 sprengjuþotnanna í síðustu viku, eins og hún er sýnd á rússneskri vefsíðu.

„Samkvæmt varnarmálaráðuneytinu sinna rússneskar langdrægar flugvélar reglulega flugi yfir hlutlausu hafsvæði norðurslóða, Norður-Atlantshafinu, Svartahafi og Eystrasaltshafi og Kyrrahafinu. Allt flug er í ströngu samræmi við alþjóðlegar reglur, án þess að brotið sé gegn lofthelgi annarra ríkja,“ segir í frétt TASS-fréttastofunnar.

Þetta var í fimmta sinn á skömmum tíma sem orustuþotur NATO flugu til móts við rússneskar hervélar. Það gerðist einnig 7. mars og 11. mars, og tvívegis í lok febrúar, en þá voru gamlir góðkunningjar kalda stríðsins á ferðinni, rússnesku birnirnir TU-142, endurbætt útgáfa TU-95. Ein þeirra fór einnig alla leið suður á Biskajaflóa þar sem franski flugherinn mætti henni.

8a5fff4cc7ef9b27254c40f139ea5ce154db77dd3316e0c30bf8731b7bb9f90d_713x0

Bresk Typhoon-orustuþota við hlið rússneskrar TU-142 hervélar undan ströndum Bretlands fyrr í mánuðinum. Mynd/Royal Air Force.

Yfirmaður breska flughersins, flugmarskálkurinn Mike Wigston, hefur aðra sýn á þetta flug en Rússarnir. Í yfirlýsingu segir hann að rússnesku vélarnar fylgi ekki alþjóðlegum flugumferðarreglum, þær skapi hættu fyrir farþegaflug „og þær eru ekki velkomnar í okkar loftrými“.

Vefsíðan Barents Observer rekur þetta aukna flug Rússa undanfarnar vikur meðal annars til æfingar tveggja bandarískra kjarnorkukafbáta undir ísnum á Norðurheimskautinu. Bandaríski herinn setti samtímis upp bráðabirgðaherbúðir á ísnum, auk þess sem kafbátarnir hafa æft sig í að brjóta sér leið upp í gegnum ísinn. Flug Rússanna megi einnig tengja NATO-æfingu sem áformuð var í Norður-Noregi, en blásin af í síðustu viku vegna kórónu-veirunnar.

2cd2877a2cf9a42d5f3bd5a25c5e3e4237638530cfc770b0cf55642fc2a72409_713x0

Rússnesk TU-160 sprengjuþota að tengjast eldsneytisáfyllingarvél. Mynd/Varnarmálaráðuneyti Rússlands

Þá hafi það gerst í október í haust að átta rússneskir kjarnorkukafbátar sigldu skyndilega frá bækistöðvum sínum á Kólaskaga. Nokkrir þeirra hafi farið í gegnum GIUK-hliðið, milli Grænlands, Íslands og Bretlands, og haldið sig í Norður-Atlantshafinu vikum saman áður en þeir sigldu aftur heim fyrir jól.

Skoða einnig

Úkraínuher fær F-16-þotur að lokinni þjálfun flugmanna

Bandaríkjastjórn hefur heimilað stjórnvöldum bandalagsríkja sinna að gefa Úkraínumönnum F-16-orrustuþotur. Þar með aukast líkur á …