Home / Fréttir / Guðni hittir Pútin öðru sinni

Guðni hittir Pútin öðru sinni

Guðni og Pútin í Arkhangelsk árið 2017.
Guðni og Pútin í Arkhangelsk árið 2017.

 

Guðni Jóhannesson, forseti Íslands, verður í St. Pétursborg þriðjudaginn 9. apríl og hittir Vladimir Pútin Rússlandsforseta í tengslum við norðurslóðaráðstefnu þar. Forsetarnir hittust síðast á svipaðri ráðstefnu í Arkhangelsk árið 2017.

Á vefsíðu Kremlar, rússnesku forseta- og stjórnarsíðunni, segir frá þessu. Þar kemur einnig fram að Pútin ætli að hitta Sa Niinistö, forseta Finnlands, Ernu Solberg, forsætisráðherra Noregs, og Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar.

Á vefsíðunni segir að rætt verði um stöðu tvíhliða samskipta Rússa við viðkomandi ríki, alþjóðamál og svæðisbundin málefni með sérstakri áherslu á samvinnu á norðurskautssvæðinu.

Ráðstefnan í St. Pétursborg stendur í tvo daga. Þar verður athygli sérstaklega beint að siglingum fyrir norðan Rússland eftir norðurleiðinni frá Atlantshafi til Kyrrahafs, umhverfismálum og olíuvinnslu í Norður-Íshafi.

 

Skoða einnig

Ekki lengur í fyrsta sæti eftir 99 ár – hægri sveifla í Noregi

Í fyrsta sinn frá árinu 1924 er gengið til kosninga í Noregi án þess að …