
„Þetta er mjög skelfilegt og fullkomlega brjálað. Ég þakka guði og skapara mínum fyrir að þetta sé ekki svona í Danmörku,“ segir Søren Pape Poulson, leiðtogi Íhaldsflokksins og dómsmálaráðherra Danmerkur, um þróun afbrota og glæpa í sænsku borginni Malmø, 30 km frá Kaupmannahöfn, handan Eyrarsund.
Undanfarna mánuði hefur ógnaröld ríkt í Malmø vegna skotbardaga, morða og árása með handsprengjum.
Á vefsíðu Jyllands-Posten miðvikudaginn 26. apríl segir að margir danskir stjórnmálamenn telji að það séu tengsl á milli aukinnar glæpastarfsemi og mildrar útlendingastefnu sænskra stjórnvalda.
„Margt getur ýtt undir þessa þróun, eitt af því er hvernig staðið hefur verið að útlendingamálunum árum saman. Hvenær menn hafa mátt taka þau fyrir og ræða sem samfélag. Það vekur skelfingu að heyra um það sem gerist í Malmø,“ segir danski dómsmálaráðherrann.
Hann er spurður hvaða tengsl hann sjái milli þessa og stefnu Svía í útlendingamálum.
„Þegar maður sér að gettó fá leyfi til að þróast og vaxa og staðir finnast sem lögregla lætur afskiptalausa. Kannaðu hvað felst í skipulögðum aðgerðum okkar hér í Danmörku gegn gengjum og skipulögðum glæpahópum og hlustaðu síðan á það sem við heyrum frá Malmø. Þar bíða risavaxin verkefni.
Vissulega eru verkefnin á þessu sviði alvarleg í Danmörku en mér stendur alls ekki á sama um að staðan sé svona í Malmø.“
Þá er ráðherrann spurður hvort skilja beri hann á þann hátt að of margir hafi lokast inni í Svíþjóð.
„Ég stend ekki hér og tel mig geta sagt nákvæmlega hvernig þetta er. Svíar hafa á hinn bóginn verið þekktir fyrir að fylgja mjög vægri útlendingastefnu. Með því segi ég örugglega ekki of mikið. Þá má einnig segja að opinber umræða um málið hefur ekki verið áberandi undanfarin ár.
Hér í Danmörku hefur umræðan verið mjög opin og heiðarleg hvað sem á hefur dunið. Þess vegna er staðan nú eins og hún er. Af því að við höfum tekið frumkvæði víða.
Verði gettóvandinn svo alvarlegur að hann berist til Danmerkur breytist staðan mjög og verður alvarleg. Annars er það ekki mitt að sýsla með stefnu Svía í lögreglu- og útlendingamálum,“ segir Søren Pape Poulsen.
Danski dómsmálaráðherrann er minntur á að Malmø sé aðeins 30 km frá Kaupmannahöfn og spurður hvers hann krefjist af sænskum stjórnmálamönnum til að takmarka glæpastarfsemina.
„Að ég ræði þetta mál er vegna þess að það hefur áhrif í Danmörku. Annars blanda ég mér ekki í það.
Ég vil þá hvetja til þess að menn láti hart mæta hörðu í þessum hverfum. Það er brýn nauðsyn á að hreinsa þar til og að hreinsa út úr þeim ef marka má það sem við heyrum frá Malmø.“
Peter Kofod Poulsen, talsmaður Danska þjóðarflokksins í lögreglumálum, segir að sænskar ríkisstjórnir beri hver sína ábyrgð. „Það er ótrúlegt að í vel starfhæfu landi eins og Svíþjóð hafi ástand þróast á þann slæma hátt sem við sjáum nú. Það hefur orðið sprenging í glæpastarfseminni og ekki er lengur unnt að neita að það tengist útlendingastefnu Svía,“ segir Poulsen.
Søren Pape Poulsen dómsmálaráðherra segir að ríkislögreglan fylgist náið með framvindu mála en hún telji á þessu stigi ekki ástæðu til að ætla að ástandið í Malmø hafi áhrif í Danmörku.
Heimild: ritzau