Það vekur enga sérstaka undrun að Rússar geri nú kröfu um að landgrunnið á norðurpólnum sé viðurkennt sem eign þeirra og vekur ekki heldur uppnám að Danir og Kanadamenn hafa einnig krafist eignarhalds á hluta hafsbotnsins á þessu svæði, segir Sarah Kott í úttekt á vefsíðu Jyllands-Posten þriðjudaginn 4. …
Lesa meiraForseti Úkraínu útilokar ekki árás Rússa á Finna og Eystrasaltsþjóðirnar
Petro Porosjenkó, forseti Úkraínu, sagði AFP-fréttastofunni mánudaginn 3. ágúst að Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefði áform um að ráðast „inn í alla Evrópu“ og taldi hann að Eystrasaltsríkin og Finnland yrðu hugsanlega næstu fórnarlömb hans. „Pútín ætlar að ganga eins langt og við leyfum honum,“ sagði Porosjenkó í samtali við …
Lesa meiraÞingmaður í Montenegro telur hagstætt að vera besti vinur Rússlands, andmælir viðskiptaþvingunum
Evrópusambandið ákvað hinn 22. júlí að framlengja refisaðgerðir gegn Rússum vegna yfirgangs þeirra í Úkraínu til 23. júní 2016. Miðvikudaginn 30. júlí var tilkynnt að sjö ríki utan ESB hefðu ákveðið að slást í hóp með ESB-ríkjunum: Albanía, Georgia (að hluta), Ísland, Liechtenstein, Montenegro (Svartfjallaland), Noregur og Úkraína. Á vefsíðunni …
Lesa meiraRússneskar áróðurssíður fagna stuðningi vestrænna þingmanna
Á áróðurssíðum rússneskra stjórnvalda er hampað mjög þingmönnum í einstökum ESB- og NATO-löndum sem rísa gegn ákvörðunum um viðskiptaþvinganir á Rússa. Á vefsíðunni sputniknews.com mátti laugardaginn 1. ágúst sjá vitnað af velþóknun til gagnrýni sem Nadine Morano, fyrrv. ráðherra og núv. ESB-þingmaður UMP-mið-hægriflokksins lét falla á fésbókarsíðu sinni föstudaginn 31. …
Lesa meiraSameiginlegar flota- og flugheræfingar Kínverja og Rússa
Kínverjar og Rússar munu á næstunni efna til sameiginlegra heræfinga á sjó og í lofti á Japanshafi til að efla enn frekar samstarf sitt á sviði her- og varnarmála. Yang Yujun, talsmaður kínverska varnarmálaráðuneytisins, skýrði frá þessu á blaðamannafundi í Peking fimmtudaginn 30. júlí. Æfingarnar munu standa í …
Lesa meiraFylgst með 10 rússneskum hervélum yfir Eystrasalti
Flugmenn Typhoon-orrustuþotna breska flughersins sem sinnt hafa loftrýmisgæslu frá Eistlandi flugu í síðustu viku í veg fyrir 10 rússneskar hervélar í einum leiðangri segir í frétt frá breska varnarmálaráðuneytinu fimmtudaginn 30. júlí. Bresku þoturnar voru sendar á loft eftir að rússnesku vélarnar sáust í ratsjám NATO. Þær voru þá …
Lesa meiraEindregin samstaða með Tyrkjum í NATO
NATO sendi frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu þriðjudaginn 28. júlí: „Atlantshafsráðið kom saman í dag að ósk Tyrkja til að ræða saman á grundvelli 4.gr. Norður-Atlantshafssáttmálans þar sem segir: „ríkin munu bera saman bækur sínar hverju sinni þegar eitthvert þeirra telur að landsyfirráðum, stjórnmálalegu sjálfstæði eða öryggi einhvers þeirra sé ógnað“. …
Lesa meiraBandaríkin: Tilraun með neðansjávar-dróna heppnast
Áhöfn bandaríska kjarnorkuknúna árásar-kafbátarins North Dakota af Virginu-gerð sendi frá sér og náði aftur um borð neðansjávar-dróna segir í frétt AP-fréttastofunnar föstudaginn 24. júlí. Frétt um þetta birtist skömmu eftir að kafbáturinn sneri að nýju til Bandaríkjanna eftir næstum tveggja mánaða úthald í Miðjarðarhafi. Áhöfn kafbátsins hafði það sérstaka hlutverk …
Lesa meiraPútín samþykkir nýja flotastefnu – þung áhersla á Atlantshaf
Í tilefni dags rússneska flotans, sunnudaginn 26. júlí, samþykkti Vladimír Pútín Rússlandsforseti nýja flotastefnu þar sem lögð er áhersla á öflugt úthald herskipa á Atlantshafi. Stefnan nær til herskipa, flutningaskipa og hafrannsóknarskipa. Hún nær nú í fyrsta sinn til suðurskautsins. Í stefnunni segir að NATO framkvæmi nú „óviðunandi“ áætlanir um …
Lesa meiraDanmörk: Flugherinn hefur fullt eftirlit með rússneskum hervélum
Í Berlingske Tidende birtist nú greinarflokkur um hvernig danski herinn sem minnkað hefur jafnt og þétt undanfarin ár er búinn undir aukið áreiti af hálfu Rússa. Þar hefur ekki síst reynt á flugherinn en laugardaginn 25. júlí birti blaðið úttekt að varnarviðbúnaði hans. „Með tölvuskjái sem skjöld og með aðstoð …
Lesa meira